Umsagnir Viðskiptavina

Guðríður Ólafsdóttir - Lýsing hf

Guðríður Ólafsdóttir, yfirmaður útlánasviðs og staðgengill framkvæmdastjóra.
 "Í þeirri viðleitni Lýsingar að bjóða bestu mögulega þjónustu hvort sem er með beinni ráðgjöf eða upplýsingagjöf í gegnum síma er óhætt að segja að Símaverið hafi reynst sem mjög góður samherji. Lýsing hefur nýtt sér þjónustu Símaversins með yfirfall símtala, þ.e. símtöl sem starfsmenn Lýsingar ná ekki að svara. Með þessu samstarfi við Símaverið tekst Lýsingu að halda þeim þjónustustöðlum sem fyrirtækið hefur sett sér varðandi þjónustu við viðskiptavini í gegnum síma. Óhætt er að segja að samstarfið við Símaverið hefur gengið mjög vel".