Umsagnir Viđskiptavina

Björn Jóhannesson - Lögsýn ehf.

 

Björn Jóhannesson er eigandi Lögsýnar og jafnframt eini starfsmaður fyrirtækisins.


Ég hef verið mjög ánægður með þá þjónustu er ég fæ hjá Símaverinu.  Í fyrstu var ég nokkuð hikandi gagnvart því að mögulegt væri að svara fyrir mig annars staðar en á skrifstofunni hjá mér.  En þessi skoðun mín hefur breyst. Kostirnir við þessa þjónustu eru ótvíræðir.  Ég þarf ekki að hafa áhyggjur þó síminn sé að hringja þegar viðskiptamenn eru hjá mér eða ef ég þarf að einbeita mér sérstaklega að viðfangsefnum mínum og get ekki svarað símanum.  Vitandi það að viðskiptamenn mínir fái ávallt símsvörun strax, gerir mig rólegri og auðveldar mér að einbeita mér að viðkomandi viðfangsefni.  Skilaboð um símhringingar fæ ég síðan frá Símaverinu ýmist send með tölvupósti eða með sms skilaboðum, sem ég reyni síðan að svara við fyrsta tækifæri.  Þannig fá viðskiptamenn mínir að vita að ég muni hafi samband við þá við fyrsta tækifæri, sem er einnig mikill kostur fyrir þá.


Ég mæli hiklaust með þjónustu Símaversins og hvet fyrirtæki að kynna sér kosti hennar af eigin raun.